Greinar

NÝJA SPORÐDREKATUNGLIÐ

Ég veit að þessi grein er aðeins eftirá, vegna þess að nýja Tunglið í Sporðdreka kviknaði þann 9. nóvember síðastliðinn á 16 gráðum í Sporðdreka. Þetta er hins vegar svo góð skýring á því hvaða áhrif það er að hafa á okkur að mér finnst nauðsynlegt að deila henni. Áhrifanna gætir nefnilega áfram – í allt að sex mánuði og þótt vera kunni að Sólin þín sé ekki í Sporðdreka – þá er Sporðdrekinn einhvers staðar í kortinu þínu og hefur áhrif. Spurningin er bara hvaða áhrif?

Lesa meira »

NÓVEMBER – LJÓSIÐ VIÐ ENDA GANGANNA

Október var SPENNUÞRUNGINN. Nóvember lítur út fyrir að ætla að verða rólegri. Úranus er í nákvæmri 120 gráðu samhljóma afstöðu við Plútó, Venus er í sextíu gráðu samhljóma afstöðu bæði við Júpíter og Mars nánast allan mánuðinn, auk þess sem stór þríhyrningur myndast í eldmerkjunum – og margt fleira.

Lesa meira »

MIKILVÆGI LIFRAR

Lifrin er eitt af lífsnauðsynlegustu líffærum líkamans, því án hennar getum við ekki lifað. Í náttúrulækningum er heilbrigð lifur því gjarnan álitin lykill að góðri heilsu. Sé hún vanvirk má í reynd segja að allur líkaminn líði fyrir það.

Lesa meira »

ÞETTA ENDAR MEÐ ÞÉR

Þessi samstaða við Sólina er miðpunkturinn á ferð Venusar aftur á bak og augnablikið þegar hún fer úr því að vera kvöldstjarna yfir í að verða morgunstjarna. Þetta er jafnframt síðasta hringrás Venusar sem hefst í Sporðdrekanum í mjög langan tíma.

Lesa meira »

VENUS Í UNDIRHEIMUM

 Undanfarin kvöld hefur Venus, á ferð sinni aftur á bak, sigið eftir sólsetur æ neðar í átt að sjóndeildarhringnum. Nú getur það gerst hvenær sem er að hún renni inn í geisla Sólarinnar sem er að setjast og hverfi af himninum.

Lesa meira »

SEINNI HLUTI OKTÓBER

Sama dag og Sól og Venus mætast eða þann 24. október stöðvast Merkúr á 20 gráðum í Sporðdreka til að breyta um stefnu og fara aftur á bak.

Tímasetningin er næstum því kómísk: Merkúr fer aftur á bak sama dag og nýr Venusarhringur hefst, og fer svo beint fram á við sama dag og Venus, þann 14. nóvember.

Lesa meira »

VENUS – SANNLEIKUR HJARTANS

Tákn Venusar er spegillinn, en spegill Venusar snýst ekki um hégóma. Hann er ekki þarna til að segja okkur hvort við séum eftirsóknarverð eða verðug ástar. Hann er þarna til að sýna okkur okkur sjálf.

Lesa meira »

OKTÓBER 2026 – STÖNDUM MEÐ OKKUR SJÁLFUM

Október þetta árið er svo sannarlega stór mánuður í stjörnuspekilega séð. Mikilvægasti atburðurinn er auðvitað ferð Venusar aftur á bak sem hófst þann 3. október. Venus er sú pláneta sem ver minnstum tíma á ferð aftur á bak – eða aðeins um 7% – svo þegar það gerist finnum við öll fyrir því.

Lesa meira »

VENUS Á FERÐ AFTUR Á BAK Í SPORÐDREKANUM

Eitt mikilvægasta ferli Venusar á þessu ári er framundan. Venus fer einungis aftur á bak í fimm merkjum á hverju hundrað ára tímabili. Á núverandi tímabili fer Venus aftur á bak í Hrútnum, Tvíburunum, Ljóninu, Steingeitinni og Spoðdrekanum.

Lesa meira »